Guðfræðistofnun

Text

Guðfræðistofnun er vettvangur rannsókna á sviði guðfræði og trúarbragðafræði. Hún gengst fyrir útgáfu, ráðstefnum og fyrirlestrum og leitast við að auka tengsl rannsókna og kennslu.

Image
Image
""

Guðfræðistofnun Háskóla Íslands var komið á fót með reglugerð dagsettri 25. júní 1975 en fékk fyrst fjárveitingu til starfa árið 1986. Hún er starfrækt sem grunnstofnun innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Hlutverk stofnunarinnar er skilgreint þannig samkvæmt reglum fyrir stofnunina:

  • Að styðja rannsóknir félaga í guðfræði og trúarbragðafræði, ein eða í samvinnu við aðra;
  • Að gangast fyrir útgáfu, ráðstefnum, fyrirlestrum og hvers kyns annarri starfsemi sem stutt gæti rannsóknir og kennslu í guðfræði og trúarbragðafræði og eflt tengsl við alþjóðlegt háskólasamfélag sem og við íslenskt þjóðlíf;
  • Að veita rannsóknanemum, nýdokturum og gestafræðimönnum aðstöðu og tækifæri til rannsóknastarfa eftir því sem kostur er og efla um leið tengsl rannsókna og kennslu.

Guðfræðistofnun gefur út Ritröð Guðfræðistofnunar (Studia theologica islandica) sem koma skal út tvisvar á ári. Auk Ritraðarinnar getur Guðfræðistofnun gefið út önnur rit ein eða í samstarfi við aðra. 

 

 

Formaður

 

Stjórn

Reglur fyrir Guðfræðistofnun Háskóla Íslands

1. gr. Almennt
Guðfræðistofnun  Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun, starfrækt  sem grunnstofnun innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands.

2. gr. Hlutverk
Hlutverk Guðfræðistofnunar er:

a. að styðja rannsóknir félaga í guðfræði og trúarbragðafræði, ein eða í samvinnu við aðra;

b. að gangast fyrir útgáfu, ráðstefnum, fyrirlestrum og hvers kyns annarri starfsemi sem stutt gæti rannsóknir og kennslu í guðfræði og trúarbragðafræði og eflt tengsl við alþjóðlegt háskólasamfélag sem og við íslenskt þjóðlíf;

c. að veita  rannsóknanemum, nýdoktorum og gestafræðimönnum  aðstöðu og tækifæri  til rannsóknastarfa eftir því sem kostur er og efla um leið tengsl rannsókna og kennslu. Stjórn Guðfræðistofnunar getur ákveðið, að fengnu samþykki félagafundar eða ársfundar og í samráði við stjórn  Hugvísindastofnunar (sbr. 4. gr. reglna  um Hugvísindastofnun Háskóla Íslands), að koma á fót rannsóknastofum sem sinna tilteknum rannsóknaverkefnum, rannsóknasviði eða samstarfi sem  fellur  að hlutverki Guðfræðistofnunar.

3. gr. Fjármál og rekstur
Stofnunin fær árlegt framlag sem stjórn Hugvísindastofnunar ákveður hverju sinni. 

Stofnunin getur auk þess fengið framlag til einstakra verkefna úr sjóði Hugvísindastofnunar. Stofnunin aflar eigin tekna eftir því sem kostur er. 

Stofnunin nýtur þjónustu Hugvísindastofnunar um bókhald og daglegan rekstur eftir samkomulagi  formanns stjórnar  Guðfræðistofnunar og stjórnarformanns Hugvísindastofnunar hverju sinni. Fjárhagsáætlun ásamt yfirliti yfir rekstur liðins árs skal lögð fyrir forseta Hugvísindasviðs og stjórn Hugvísindastofnunar til samþykktar.

Stofnunin á aðild að sameiginlegu húsnæði Hugvísindastofnunar.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi Háskólans.

4. gr. Aðild
Fastir kennarar við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild við Háskóla Íslands eru félagar í Guðfræðistofnun, nema þeir óski eftir og fái aðild að annarri  grunnstofnun.

Stundakennarar, sérfræðingar og styrkþegar stofnunarinnar, doktorsnemar í guðfræði og trúarbragðafræði og  aðrir kennarar við Háskóla Íslands sem starfa á fræðasviðinu geta sótt um og fengið aðild að stofnuninni með samþykki stjórnar á meðan þeir eru í námi eða starfa við  Háskólann. Einungis fastir kennarar á Hugvísindasviði Háskóla Íslands hafa atkvæðisrétt á ársfundi.

5. gr. Stjórn og hlutverk
Forseti Hugvísindasviðs skipar  Guðfræðistofnun þriggja manna stjórn til  þriggja  ára í senn.

a. Félagar í  Guðfræðistofnun tilnefna, á grundvelli kosningar á ársfundi, formann stjórnar úr hópi fastra kennara.

b. Einnig tilnefnir ársfundur einn meðstjórnanda og annan til vara úr hópi félaga og skal að minnsta kosti annar þeirra vera fastur kennari.

c. Þriðji stjórnarmaðurinn er að jafnaði doktorsnemi á fagsviði stofnunarinnar sem Félag doktorsnema á Hugvísindasviði hlutast til um að þeir velji úr sínum hópi.

Einungis félagar í Guðfræðistofnun geta setið í stjórn.  Meðstjórnandi er varaformaður stjórnar sé hann fastur kennari. Ef svo er ekki skal varamaður í stjórn taka sæti formanns ef hann forfallast eða þarf að víkja sæti.

Stjórnarformaður hefur umsjón með daglegum rekstri og fjármálum stofnunarinnar og gengur frá tillögum að rekstraráætlun. Hann á sæti í stjórn Hugvísindastofnunar.

Stjórnin útfærir stefnu Guðfræðistofnunar og ber ábyrgð á framkvæmd hennar. Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum  stofnunarinnar  og daglegum rekstri gagnvart stjórn Hugvísindastofnunar og forseta Hugvísindasviðs. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.

Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina frá dagskrá fundar.  

Skylt er að boða stjórnarfund óski  meirihluti stjórnar þess. Sama gildir ef forseti Hugvísindasviðs eða rektor ber fram slíka ósk og hefur þá hann, eða sá sem sækir fund í umboði hans, málfrelsi og tillögurétt á fundinum. 

Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.

Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana.

6. gr. Ársfundur og félagafundur
Ársfund skal halda á fyrsta ársfjórðungi hvers árs. Formaður  skal boða til hans með a.m.k. einnar viku fyrirvara bréflega eða með tölvupósti. Ársfundur tilnefnir fulltrúa í stjórn (sbr. 5. gr.) og fjallar um stefnu stofnunarinnar. Aðeins fastir  kennarar á Hugvísindasviði hafa atkvæðisrétt á ársfundi.

Fari þriðjungur félaga í  Guðfræðistofnun fram á það skal boða sérstakan félagafund. Sömu reglur um atkvæðisrétt gilda fyrir félagafund og ársfund.

7. gr. Réttindi og skyldur félaga
Félagar geta sótt um aðstöðu, þjónustu og styrki til  Guðfræðistofnunar og Hugvísindastofnunar. Þeir geta birt  greinar og rit, sótt um styrki, skipulagt ráðstefnur, fyrirlestra og samstarfsfundi, rannsóknarverkefni og samvinnu í nafni stofnunarinnar, með samþykki ársfundar eða stjórnar í umboði hans eftir því sem tilefni er til. Félagar eiga rétt til setu á ársfundi. Formaður stjórnar getur falið einstökum félögum trúnaðarstörf á vegum stofnunarinnar.

8. gr. Gildistaka
Reglur þessar, sem stjórn Hugvísindastofnunar hefur sett að fenginni tillögu stjórnar Guðfræðistofnunar, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglna um Hugvísindastofnun Háskóla Íslands nr. 1022/2009, taka gildi 1. október 2010. Um leið falla úr gildi eldri reglur. Núverandi stjórn stofnunarinnar sem skipuð var skv. eldri reglum heldur umboði sínu og starfar í samræmi við ákvæði í þessum reglum fram að næsta ársfundi.