Hugvísindastofnun


Viðburðir



Hugvísindastofnun, en þó einkum aðildarstofnanirnar, standa árlega fyrir ráðstefnum, málstofum og fyrirlestrum. Ýmist er um að ræða reglubundna eða einstaka viðburði, til að sameina og miðla þekkingu og skapa um leið grundvöll fyrir frekara rannsóknarstarf. Viðburðir eru kynntir í viðburðadagatali hér til hægri á síðunni en eftirfarandi er yfirlit yfir helstu reglubundna viðburði: 

 

Hugvísindaþing, árlegt þing Hugvísindastofnunar, hefur verið haldið í samstarfi við Guðfræðideild og ReykjavíkurAkademíuna. Það er kynnt
sérstaklega hér á síðunni.                                              

Frændafundur er ráðstefna sem haldin er þriðja  hvert ár í
samstarfi Hugvísindasviðs og Fróðskaparseturs í Færeyjum sem hafa gert með sér samning um rannsóknarsamvinnu. Fyrirlestrarnir hafa komið út í samnefndum bókum. Sjá nánar um Frændafund. Ráðstefnuritið Frændafundur 7 var gefin út á vegum Hugvísindastofnunar og er aðgengileg á vefnum. 

Fyrirlestraröð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur
Á hverjum vetri stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fyrir fyrirlestraröð þar sem fræðimenn innan stofnunarinnar og gestafyrirlesarar kynna rannsóknir sínar. Stofnunin stendur einnig fyrir málþingum, ráðstefnum og fleiri viðburðum sem tengjast tungumálum og menningu. Sjá nánar.

Hádegisfundir Heimspekistofnunar
Heimspekistofnun efnir að jafnaði til málstofu, Hádegisfundar Heimspekistofnunar, á föstudögum kl. 12.05-13.15 í stofu 111 Aðalbyggingu.

Íslenska söguþingið
Sagnfræðistofnun stendur að söguþingi ásamt fleiri aðilum. Fyrsta íslenska söguþingið var haldið árið 1997, það næsta árið 2002 og hið þriðja árið 2006. Markmið þeirra sem að þinginu standa er að gefa fræðimönnum tækifæri til þess að kynna nýjustu rannsóknir sínar og leiða saman sagnfræðinga - og aðra áhugamenn um sögu - til þess að ræða það sem hæst ber í faginu.

Minningarfyrirlestur Jóns Sigurðssonar
Sagnfræðistofnun stendur árlega fyrir fyrirlestri sem kenndur er við Jón Sigurðsson. Jafnan hefur erlendum fyrirlesara verið boðið til landsins.

Málvísindakaffi
Yfir veturinn er að jafnaði haldin málstofa um málfræði í Nýja Garði á hverjum föstudegi kl. 11.30-13. Matthew Whelpton stóð fyrir málstofunni í upphafi en Málvísindastofnun hefur tekið við keflinu í samvinnu við Íslenska málfræðifélagið. Þar er lögð áhersla á óformlega fyrirlestra af ýmsu tagi, til að mynda kynningar á rannsóknum sem ekki eru langt komnar. Umræður eru gjarna líflegar.

Málþing nemenda
Árlega eru haldin málþing þar sem nemendur flytja fyrirlesara. Þau eru af ýmsum toga, til dæmis hafa slík þing verið nokkurs konar uppskeruhátíð í lok námskeiðs og í sumum greinum eru þau árviss viðburður hjá nemendum á MA-stiginu.

Málþing Ritsins
Ritið, tímarit Hugvísindastofnunar, hefur haldið fjölmörg málþing frá því það hóf göngu sína og lagt þannig grunn að þema heftis. Einnig hefur Ritið efnt til málstofu á Hugvísindaþingi.  Sjá nánar.  

Norrænt sagnfræðingaþing
Norrænt sagnfræðingaþing er haldið á þriggja ára fresti. Norrænu sagnfræðingaþingin rekja rætur sínar allt til ársins 1905 en enginn Íslendingur tók þátt í því þingi. Næsta þing var haldið 1920 og síðan hafa þau verið haldin reglulega, um það bil þrjú á hverjum áratug. Íslendingar héldu sitt fyrsta þing árið 1987 og þingað var á Íslandi sumarið 2007. Landsnefnd íslenskra sagnfræðinga stýrir þingum sem haldin eru hér á landi undir forystu Sagnfræðistofnunar. 

Rask-ráðstefnan
Málvísindastofnun og Íslenska málfræðifélagið standa saman að árlegu þingi um málfræði sem kennt er við Rasmus Kristján Rask. Fyrsta ráðstefnan var haldin árið 1986 og sú 25. í janúar 2011. Dagskrá frá öllum Rask-ráðstefnum er að finna á vef Íslenska málfræðifélagsins.