
Í Árnagarði 303 laugardaginn 9. mars kl. 10:00-12:00.
Konum eflist sífellt ásmegin í flestum kimum menningar og lista. Kvikmyndagerð er þar engin undantekning – ekki heldur í Rómönsku-Ameríku. Konur láta nú til sín taka sem aldrei fyrr. Í málstofunni verður sjónum beint að því hvaða og hvernig ljósi þær bregða á umhverfi sitt – ekki hvað síst á líf annarra kvenna. Spurt verður hvort þær segi aðra eða öðruvísi sögu, hvort þær beiti annarri frásagnartækni og hvort birtingarmyndir þeirra kvenna sem varpað er á skjáinn bregði upp nýrri mynd eða staðfesti þær fyrri og stuðli þannig að áframhaldandi klisjusmíð um konur sem fórnarlömb og án atgervis.
Progresivamente la mujer está ganando terreno dentro de los contornos culturales y artísticos. El ámbito cinematográfico no representa una excepción, ni siquiera en América Latina. El protagonismo de las mujeres está en boga. En el panel se centrará en qué y cómo son las imágenes que reflejan las cineastas latinoamericanas de su entorno y, en particular, de la vida de otras mujeres. Se preguntará si cuentan una historia diferente, si utilizan técnicas narrativas diferentes y si las representaciones proyectadas en la pantalla crean una imagen nueva del sujeto femenino social o confirman las anteriores para así contribuir a la construcción continua de clichés sobre las mujeres como víctimas y sin agencia.
Málstofan fer fram á spænsku.