Um stofnunina

Hugvísindastofnun heyrir undir Hugvísindasvið Háskóla Íslands og er miðstöð rannsókna á sviðinu. Stofnunin tók til starfa árið 1998. Stjórn Hugvísindasviðs er jafnframt stjórn stofnunarinnar og er forseti Hugvísindasviðs stjórnarformaður. Fagráð Hugvísindastofnunar er skipað fulltrúum frá aðildarstofum sem eru níu talsins og fulltrúa stúdenta úr hópi nemenda í doktorsnámi við Hugvísindasvið.

Fastir starfsmenn sviðsins eiga aðild að einni rannsóknastofu á sínu fagsviði og nefnast þær grunnstofur. Þær eru sameiginlegur vettvangur þeirra sem fást við rannsóknir af sama meiði.

Hugvísindastofnun er sameiginlegur vettvangur þessara grunnstofa og eru þær sex að tölu, sjá nánar hér.

Um grunnstofur gilda sameiginlegar reglur, en hver grunnstofa markar sér stefnu í samræmi við þær. Sjá reglur.

Samkvæmt reglum Hugvísindastofnunar geta einnig starfað innan hennar þverfræðilegar rannsóknastofur með heimilisfesti á Hugvísindasviði, sjá nánar hér.

Reglur þverfræðilegra rannsóknastofa

Enn fremur geta Hugvísindastofnun og grunnstofur, í samráði við stjórn Hugvísindastofnunar, komið á fót rannsóknastofum sem sinna tilteknum rannsóknaverkefnum, rannsóknasviði eða samstarfi af ýmsu tagi. Þá hefur Hugvísindastofnun gert samstarfssamning við stofnanir og rannsóknasetur sem starfa á sviði hugvísinda.

Heiti og reglur rannsóknastofa: