
Í Veröld 008 laugardaginn 8. mars kl. 15:00-16:30.
Síkvik og fjölmenningarleg samfélög Rómönsku Ameríku ala síendurtekið af sér samfélagshópa sem í fyrstu eru staðsettir á jaðrinum. Má þar nefna baráttuhópa frumbyggja, kvenna, umhverfissinna, LGBTQ+, trans-fólks og marga fleiri. Sumir hverfa með tímanum, aðrir aðlagast öðrum hópum á sama tíma og enn aðrir eflast og öðlast viðurkenningu – verða hluti meginstraumsins.
Í málstofunni verður sjónum beint að birtingarmyndum þessa óróa í bókmenntum og kvikmyndum álfunnar nú við upphaf XXI aldar. Stuðst verður við texta- og orðræðugreiningu og varpað ljósi á það hvernig skilja megi tilurð og virkni ólíkra hreyfinga aðgerðarsinna sem ákall um uppstokkun og breytingar samfélaga þar sem feðraveldi, trúarkenningar og arðrán náttúruauðlinda hefur ráðið um aldir.