Í Odda 206, föstudaginn 13. mars kl. 13:15-14:15.
Í málstofunni er fjallað um franskar sjálfssögur og þróun þeirra frá miðri tuttugustu öld og dæmi tekin úr völdum skáldsögum sem komið hafa út á síðustu árum.
Í Odda 206, föstudaginn 13. mars kl. 13:15-14:15.
Í málstofunni er fjallað um franskar sjálfssögur og þróun þeirra frá miðri tuttugustu öld og dæmi tekin úr völdum skáldsögum sem komið hafa út á síðustu árum.
Fjallað verður um franskar sjálfssögur frá miðbiki 20. aldar til okkar daga. Stuðst verður m.a. við kenningar Monu Ozouf sem í bók sinni Les Mots des femmes : essai sur la singularité française (Women's Words: Essay on French Singularity) skoðar sérstöðu sjálfsævisögulegra skrifa eftir konur og þróun þeirra á þessu tímabili. Rýnt verður í nýjar sjálfssögur eftir bæði konur og karla en greina má nýjan tón í nýútkomnum sjálfssögum karla sem hafa verið tilnefndar til helstu bókmenntaverðlauna Frakka á síðastliðnum árum, m.a. eftir Laurent Mauvignier og Emmanuel Carrère, þar sem þeir færa sig nær því sértæka sjónarhorni sem Mona Ozouf greindi í sögum kvenna.
Fjallað verður um Goncourt-verðlaun franskra bókmennta á Norðurlöndunum sem veitt verða í annað sinn í apríl 2026, í samvinnu Institut français í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð, Alliance française í Reykjavík, franska sendiráðsins á Íslandi og Háskóla Íslands. Um er að ræða hluta af alþjóðlegum verðlaunum Goncourt-stofnunarinnar, sem á ári hverju veita virtustu bókmenntaverðlaun Frakklands. Nemendur í frönskum fræðum lesa fjórar öndvegisskáldsögur sem gefnar voru út á árinu 2025 og velja þá bók sem þeir tilnefna fyrir Íslands hönd. Þó ólíkar séu, eru skáldsögurnar á stuttlistanum allar sjálfsögur. Fjallað verður um sjálfsögurnar fjórar og þær settar í bókmenntasögulegt og hugmyndafræðilegt samhengi.