Rannsóknastofur

Við Hugvísindasvið eru stundaðar rannsóknir sem tengjast öllum kennslugreinum sviðsins, þ.e. í bókmenntum, kvikmyndafræði, listfræði, menningarfræði og miðaldafræði, erlendum tungumálum og þýðingafræði, guðfræði og trúarbragðafræði, heimspeki, siðfræði, málvísindum, fornleifafræði og sagnfræði.

Akademískir starfsmenn sinna rannsóknum sínum undir merkjum sinnar deildar og sviðsins, en jafnframt innan rannsóknarstofa á fagsviði sínu. Svokallaðar „grunnstofur“ eru sex og „þverfræðilegar rannsóknastofur“ þrjár. Allar starfa þær innan vébanda Hugvísindastofnunar. Á þessari síðu má finna vefi rannsóknastofanna en reglur sem um þær gilda eru hér ásamt reglum um aðrar rannsóknastofur innan sviðsins sem hafa afmarkaðra hlutverk.