Stjórnarfundur hjá Hugvísindastofnun 11. desember 2018
Fundur í stjórn Hugvísindastofnunar 11. desember 2018 kl. 13.00 í Háskólatorgi
Mætt voru: Guðmundur Hálfdanarson (formaður, sem stjórnaði fundi), Sveinn Yngvi Egilsson (B&L), Jóhannes Gísli Jónsson (MVS), Hjalti Hugason (GUÐ), Gunnar Harðarson (HEIM), Birna Arnbjörnsdóttir (SVF), Jón Ólafsson (RIKK), Vilhjálmur Árnason (SIÐ), Valur Ingimundarson (EDDA), Gústav Adolf Sigurbjörnsson (DOKT), Eiríkur Smári Sigurðarson og Margrét Guðmundsdóttir (sem ritaði fundargerð.
Fundargerð
1.Fundargerð síðasta fundar: Fundargerð frá fundi 21. nóvember var samþykkt.
2. Rannsóknasjóður Hugvísindastofnunar, úthlutun:
Í tengslum við úthlutina var rætt um markmið sjóðsins og þá einkum þeirrar tegundar styrkja sem lýtur að boðsgestum. Fyrir lá að við næstu endurskoðun reglnanna þyrfti sérstaklega að huga að þessari grein og jafnvel fella hana niður.
Umsækjandi | Tegund | Lýsing | Tillaga | Afgreiðsla |
---|---|---|---|---|
MVS | 1 | Alþjóðleg ráðstefna í apríl 2019: IALS 8 (International Association of Literary Semantics | 300.000 | Samþykkt, styrkur allt að 300.000. |
MVS | 1 | Innlend ráðstefna í október 2018: Ólafsþing í samvinnu við félagið Mál og saga | 125.000 | Samþykkt, styrkur allt að 125.000. |
RIKK | 1 | Alþjóðleg ráðstefna um mánaðamótin feb.-mars 2019: Drögum (kynja)tjöldin frá | 300.000 | Samþykkt, styrkur allt að 300.000. |
RÍM | 1 | Ráðstefna í mars 2019: Hva med språkfellesskapet? | 300.000 | Samþykkt, styrkur allt að 300.000. |
SVF | 1 | Innlend ráðstefna í nóvember 2018: Syndin í tíma og ótíma | 125.000 | Samþykkt, styrkur allt að 125.000. |
RIKK | 2 | Málþing/viðburður: Minna hot í ár | 50.000 | Samþykkt, styrkur allt að 50.000. |
RIKK | 2 | Fyrirlestraröð á haustmisseri 2018 | 50.000 | Samþykkt. |
SVF | 2 | Pallborðsumræður, hluti af fyrirlestraröð | 50.000 | Samþykkt, styrkur 50.000. |
SVF | 2 | Stutt málþing í apríl um franska gamanleikritið Tartuffe | 50.000 | Samþykkt, styrkur allt að 50.000. |
SVF | 2 | Málþing á vormisseri 2019 í tengslum við sýninguna Fyrstu kynni | 50.000 | Samþykkt, styrkur allt að 50.000. |
GUÐ | 3 | Boðsgestur í október 2018: Mark. S. Burrows | 0 | Hafnað. |
GUÐ | 3 | Boðsgestur í október 2018: Hilda P. Koster | 125.000 | Samþykkt, styrkur allt að 125.000. |
SVF | 3 | Boðsgestur í apríl-maí 2019: Hélène Merlin-Kajman. | 125.000 | Samþykkt, styrkur allt að 125.000. |
HUG/Miðaldastofa | 3 | Boðsgestur á vormisseri 2019: Stefan Brink | 125.000 | Samþykkt, styrkur allt að 125.000. |
SVF | 3 | Boðsgestur vorið 2019: Hélène Tétrel | 0 | Hafnað. |
SVF | 3 | Boðsgestur haustið 2019: Luise von Flotow | 125.000 | Samþykkt, styrkur allt að 125.000. |
EDDA | 3 | Boðsgestur í maí 2019: Rikke Andreassen | 0 | Hafnað. |
RIKK | 3 | Boðsgestur í maí 2019: Diana Mulinari | 0 | Hafnað. |
GUÐ | 4 | Útgáfa: Ritröð Guðfræðistofnunar 1/2018 | 220.000 | Samþykkt. |
GUÐ | 4 | Útgáfa: Ritröð Guðfræðistofnunar 2/2018 | 220.000 | Samþykkt með fyrirvara um útgáfu á árinu. |
MVS | 4 | Útgáfa: Á vora tungu | 220.000 | Samþykkt. |
MVS | 4 | Útgáfa: Tilbrigði í íslenskri setningagerð III | 220.000 | Samþykkt. |
ME (Miðst. eins.ranns.) | 4 | Útgáfa: Á mörkum mennskunnar | 220.000 | Samþykkt. |
SAGN | 4 | Útgáfa: Af hverju strái | 220.000 | Samþykkt. |
SIÐ | 4 | Útgáfa: Íslenskt lýðræði | 220.000 | Samþykkt með fyrirvara um útgáfu á árinu. |
SIÐ | 4 | Útgáfa: The Moral Perspective | 220.000 | Samþykkt. |
SVF | 4 | Útgáfa: Milli mála 2017 (útg. 2018) | 220.000 | Samþykkt. |
SVF | 4 | Útgáfa: Hafið starfar í þögn minni | 220.000 | Samþykkt með fyrirvara um útgáfu á árinu. |
B&L | 4 | Útgáfa: Jane Austen og ferð lesandans | 220.000 | Samþykkt. |
Alls allt að: | 4.320.000 |
3. Önnur mál: Margrét Guðmundsdóttir sagði frá kalli fyrir Hugvísindaþing sem sent verður út í vikunni. Eiríkur Smári Sigurðarson gerði grein fyrir skiptingu fjár milli stofnana næsta ár samkvæmt því líkani sem stuðst hefur verið við en fjárveiting liggur ekki fyrir, nema hvað líklegt er að hún hækki nokkuð.
Fundi slitið um kl. 11.00.